Hjólreiðar á Íslandi
|
|
|
Á íslanti eru tvö hjolafjeglög
sem eru að gera eit hvað
Hjólreiðafélag Reykjavíkur sem er íþróttafélag
innan Íþróttabandalags Reykjavíkur. Markmið
er að efla hjólreiðar sem íþrótt á
Íslandi.
Félagið stendur fyrir keppnum bæði á fjalla-
og götuhjólum, auk þess sem á vegum félagsins
eru stundaðar æfingar reglulega.
Hjólreiðafélag Reykjavíkur er u.þ.b. 70
ára gamalt og hefur verið virkt af og til þann tíma.
Félagið hefur staðið fyrir flestum hjólreiðakeppnum
sem haldnar hafa verið hér á landi á þessum
70 árum, og krýnir á hverju ári bæði
Íslands- og bikarmeistara í bæði fjalla- og götuhjólreiðum.
Og Íslenski Fjállahjólaklúbburinn samanstendur
af breiðum hópi fólks sem hefur hjólreiða að
áhugamáli, vill auka veg reiðhjólsins sem samgöngutækis
og vinnur að bættri aðstöðu hjólreiðafólks
til samgangna. Markmiðið er að fá sem flesta til að
fara ferða sinna á hjóli og komast í náið
samband við móður náttúru.Klúbburinn er
með opið hús alla fimmtudaga kl 20:00 og laugardaga kl 12:00-kl14:00
Þar gefst kostur á að kynnast öðru fólki
með svipuð áhugamál yfir kaffibolla og tala um heima
og geima, eða verða sér út um upplýsingar um
athyglisverðar hjólaleiðir, tæknileg málefni eða
hvað eina tengt hjólreiðum.